Í breskri rannsókn
kenndri við þingmanninn John Bercow (2008) var gerð athugun á þjónustu,
ábyrgð, dreifingu fjármagns og eftirfylgni sem beindist að börnum og ungmennum
(0-19 ára) með sérþarfir á sviði tals- og málþroska (Bercow, 2008). Þátttakendur svöruðu opnum spurningum.
Niðurstöður rannsóknarinnar fjall
um fimm svið.
Í fyrsta lagi að færni í máli og tali skipti sköpum fyrir
einstaklinginn og framtíðarmöguleika hans,
í öðru lagi að snemmtæk
íhlutun og skilgreind meðferð væri grundvallaratriði til að koma í veg fyrir
laka útkomu hjá börnum og ungmennum,
í þriðja lagi að þjónustan þurfi að vera
samfelld og miðast við þarfir fjölskyldnanna,
í fjórða lagi að samstarf og
teymisvinna fjölskyldna og faghópa væri nauðsynleg og
í fimmta lagi að
þáverandi kerfi um þjónustu einkenndist af miklum breytileika og ósanngirni.